Hvað getur cayennepipar gert fyrir heilsuna?
Það væri óskandi að til væru töfratöflur sem gæfu okkur ódauðleika og eilíft líf. Ódauðleiki er kannski ekki raunhæft markmið, frekar gott líf þar sem við erum laus við lífsstílstengda sjúkdóma sem við fáum meðal annars með röngu mataræði.
Eitt af því sem hefur vakið áhuga minn sem næringarfræðings er sterk krydd eins og chillí pipar og þ.m.t. cayennepipar og þau áhrif sem hann getur haft á heilsu og lífsgæði. Hvað er það sem getur mögulega verið svona ótrúlega hollt og gott, að fullyrðingar um piparinn eru oft lyginni líkastar?

Fyrir hjarta- og æðakerfið
Í rannsókn sem lýðheilsudeild Harvard birti í fagriti í ágúst 2015 kemur fram að þeir sem borða kryddaðan mat svo gott sem á hverjum degi hafi 14% lægri dánatíðni en fólk sem borðar aðeins kryddaðan mat einu sinni í viku. Rannsóknin náði til um 500.000 einstaklinga í Kína á árunum 2004–2008. Það þýðir þó ekki að fólk lifi að eilífu heldur að lífslíkur hjá þessum einstaklingum aukist. Aðalkryddið er ferskur og/eða þurrkaður chilli pipar.
Lífvirka efnið í piparnum er capsaicin og er það talið gott fyrir hjarta- og æðakerfið þar sem það getur lækkað slæmt kólesteról og þríglýseríð í blóði. Það er einnig talið vera blóðþynnandi og hafa jákvæð áhrif á virkni ónæmiskerfisins, verki og sykursýki af tegund 2. Einnig eru vísbendingar um að það hafi góð áhrif á þarmaflóruna. Að auki hafa komið fram vísbendingar um að capsaicin geti haft áhrif á krabbamein og tíðni þeirra.
Ávinningurinn
Næringarfræðisamtök Bandaríkjana (American Nutrition Association eða ANA) mæla með notkun cayennepipars. Í grein um piparinn er mælt með að setja cayennepiparinn á topp 10 lista yfir krydd sem eiga heima í eldhúsinu, þar sem hann geti aukið virkni hinna kryddanna á listanum.

Notkun – magn og styrkleiki
Mælt er með að nota um fjórðung úr teskeið af cayennepipar í volgt vatnsglas ásamt ferskum sítrónusafa og auka magnið smám saman upp í eina teskeið á dag eftir þoli. Einnig er talið gagnlegt að bæta við einni matskeið af olíu, til dæmis ólífuolíu eða hörfræolíu, þar sem það getur varið slímhúðina og hjálpað við upptöku capsaicins. Þetta er oft tekið sem skot og ráðlagt að halda sopanum í munninum í nokkrar sekúndur áður en kyngt er. Kalt vatn á eftir er talið setja punktinn yfir i-ið.
Vöruframboð cayennepipars er mikið og samtökin mæla með að velja lífrænt duft. Piparinn er flokkaður eftir styrkleika, mældum í Scoville heat units (SHU), og er cayennepipar yfirleitt á bilinu 40.000–90.000 SHU. Fyrir byrjendur er ráðlagt að velja lægri styrkinn, um 40.000 SHU, þar sem minni styrkur er talinn hafa takmarkað áhrif.
Mælt er með að nota duftið frekar en hylki sem seld eru sem capsaicin. Ástæðan er sú að í munni og hálsi eru taugaendar sem virkjast við inntöku duftsins, sem gerist ekki þegar efnið er tekið í töfluformi.
Byrjum varlega
Cayennepipar getur verið góð viðbót við mataræðið hér á Íslandi og bætt kryddi í tilveruna. Hins vegar þola ekki allir drykkinn jafnvel. Rannsóknir hafa sýnt að sár í vélinda geta myndast við of mikla inntöku. Því er mikilvægt að fara rólega af stað og fylgjast vel með viðbrögðum líkamans.

Ef einstaklingar eru á lyfjum þarf alltaf að skoða hvort aukin neysla á kryddi geti haft áhrif á upptöku lyfjanna og þar með virkni þeirra. Cayennepipar tilheyrir náttskuggaætt og sumir þola illa fæðutegundir af þeirri ætt. Mikilvægasti lærdómurinn er því að hlusta á líkamann.
Þríhyrningurinn þarf þó alltaf að virka rétt: næring, hreyfing og andleg heilsa þurfa að haldast í hendur – með smá dassi af pipar.
1 Álit
hæ hæ, þessi grein var þrusu góð hjá þér eins og allt sem kemur frá þér. Ég nota mjög mikið chili pipar í matargerð og nýt þess. Takk fyrir frábæra fræðandi grein !