Fara í efni
Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um?

Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um?

Barnateikning og sími á matarborði á meðan fullorðnir ræða saman í bakgrunni.

Líkamsímynd · heilsa · ábyrgð

Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um?

Samfélagsmiðlar hafa áhrif. En börnin okkar læra líka af því sem þau heyra þegar enginn skjár er í herberginu.

Grein6 mín. lestur
LÍKAMIHEILSAÁBYRGÐ

Umræðan um aukningu átraskana meðal barna og ungmenna er bæði mikilvæg og óhugnanleg. Börn eru að greinast sífellt yngri og sjónum hefur, skiljanlega, mikið verið beint að samfélagsmiðlum, útlitsdýrkun og stöðugum samanburði.

Samfélagsmiðlar eru án efa hluti af vandanum.

En ég velti fyrir mér hvort við séum að horfa fram hjá öðru sem getur sent börnum og ungmennum alveg jafn sterk skilaboð um líkama, þyngd og eigið virði.

Það er mikil notkun þyngdarstjórnunarlyfja og umræðan sem hefur skapast í kringum þau.

Þegar lyf eins og Ozempic og Wegovy verða hluti af daglegu samtali, þegar við sjáum fólk léttast hratt og þegar fullorðið fólk ræðir opinskátt hver sé á lyfjum, hver hafi grennst og hver „ætti kannski bara að fara á lyf“, verður sú umræða líka hluti af því umhverfi sem börnin okkar alast upp í.

Við þurfum líka að horfa á það sem þau heyra inni á heimilunum.

Börnin heyra meira en við gerum okkur grein fyrir

Mikil notkun þyngdarstjórnunarlyfja og sú mikla áhersla sem nú er lögð á hratt þyngdartap getur haft áhrif á líkamsímynd og viðhorf til þyngdar — sérstaklega hjá ungum eyrum sem eru stöðugt að hlusta, fylgjast með og læra af okkur.

Hvernig tölum við fullorðna fólkið um líkama og þyngd þegar börnin okkar heyra til?

Við sjáum fólk léttast hratt, tölum um hver sé kominn á lyf og heyrum jafnvel setningar á borð við:

„Af hverju fer hún ekki bara á lyf?“

Kannski þurfum við sjálf að sýna ákveðinn aga í þessari umræðu. Börnin heyra nefnilega ekki aðeins hvað við segjum um aðra. Þau læra um leið hvaða líkamar eru taldir eftirsóknarverðir og hvaða líkamar virðast þurfa að „laga“.

Slíkar setningar segja mögulega meira um okkar eigin þyngdarfordóma en manneskjuna sem við erum að tala um.

Fordómar hætta ekki að vera fordómar þótt við pökkum þeim inn í áhyggjur af heilsu.

Hvaða skilaboð berast börnunum okkar þegar þau sjá fullorðna léttast hratt með lyfjum og heyra okkur ræða líkama annarra — á sama tíma og við segjum þeim að líkamsvirðing, fjölbreytileiki og heilbrigt samband við mat skipti máli?

Barnateikning, sími og vatnsglas á matarborði.
Það sem sagt er við matarborðið getur setið eftir löngu eftir að samtalinu lýkur.

Þetta snýst ekki um að vera á móti lyfjum

Þyngdarstjórnunarlyf geta verið gagnleg meðferð þegar þeirra er þörf. Þessi umræða snýst því ekki um að vera með eða á móti lyfjum.

Hún snýst um að lyfin megi ekki koma í stað fræðslu, eftirfylgni og skilnings á því sem er að gerast í líkamanum.

Við þurfum að læra á líkamann á hverju æviskeiði og skilja meðal annars breytingar á blóðsykri, næringarþörf, vöðvamassa, svefni, streitu og hreyfingu.

Spurningar sem skipta máli

  • Hvað þarf líkaminn minn frá mér núna?
  • Hvað er að gerast með blóðsykurinn minn?
  • Fæ ég næga næringu og prótein?
  • Hvernig vernda ég vöðvamassann?
  • Hvernig hafa svefn, streita og hreyfing áhrif á líðan mína?

Lyf geta verið hluti af meðferð. En lyfið eitt og sér kennir okkur ekki að næra líkamann, skilja hann eða vinna með honum.

Dæmi sem sat í mér

Persónuleg frásögn

Ég fékk nýlega konu til mín í ráðgjöf sem hafði verið sett á þyngdarstjórnunarlyf.

Hún hafði lést töluvert en upplifði svo mikið lystarleysi og ógleði í kringum sprautudagana að hún átti erfitt með að borða eðlilega með börnunum sínum og fjölskyldu.

Hún leitaði til mín vegna þess að hún hafði sjálf áhyggjur af næringarástandi sínu og mögulegu tapi á vöðvamassa.

En það sem sat mest í mér var þetta:

Hún vildi alls ekki hætta á lyfinu vegna þess að hún var hrædd um að fitna aftur.

Þarna fannst mér ástæða til að staldra við.

Ef óttinn við að þyngjast vegur orðið þyngra en áhyggjur af næringu, líðan og vöðvamassa, er þá nóg að segja að meðferðin hafi „virkað“ vegna þess að talan á vigtinni fór niður?

Hvað lærði einstaklingurinn um líkama sinn á leiðinni? Hvernig er sambandið við mat? Og hvað gerist ef eða þegar lyfjameðferðinni lýkur?

Þarna finnst mér heilbrigðiskerfið líka bera ábyrgð. Einstaklingur sem fær slíka meðferð þarf fræðslu og viðeigandi eftirfylgni samhliða henni.

Lyfið eitt og sér kennir okkur ekki að næra okkur vel, vernda vöðvamassann, skilja blóðsykurinn eða takast á við breytingar á líkamanum.

Þegar talan á vigtinni verður eini mælikvarðinn

Árangur í heilsueflingu verður ekki metinn eingöngu út frá tölunni á vigtinni.

Við þurfum líka að horfa á næringarástand, vöðvamassa, styrk, svefn, blóðsykur, líðan og samband einstaklingsins við mat og eigin líkama.

Þyngdin getur vissulega breyst í því ferli. En þyngdartap eitt og sér segir okkur ekki alla söguna.

Ef einstaklingur léttist en nærir sig illa, missir vöðvamassa, glímir við vanlíðan eða þróar með sér aukinn ótta við að þyngjast, verðum við að geta staldrað við og spurt hvort við séum að horfa á réttu mælikvarðana.

Listræn mynd af manneskju sem vinnur með líkama sínum.
Heilsuefling á að hjálpa okkur að skilja líkamann — ekki kenna okkur að óttast hann.

Ég þarf líka að horfa í eigin barm

Ég starfa sjálf við fræðslu og ráðgjöf um blóðsykursstjórnun, næringu og heilsu. Ég get því ekki skrifað um þetta án þess að horfa líka á mína eigin ábyrgð.

Við sem störfum á þessu sviði erum ekkert undanþegin.

Fyrir mér snýst ráðgjöf um að hjálpa fólki að skilja eigin líkama og fá verkfæri til að hugsa vel um hann. Þyngdin getur vissulega breyst í því ferli, en talan á vigtinni getur ekki verið eini mælikvarðinn á árangur.

Þegar ég tala um megrunarmenningu á ég ekki við alla umræðu um þyngd eða efnaskiptaheilsu.

Ég á við þá hugmynd að grennri líkami sé sjálfkrafa betri eða heilbrigðari og að þyngdartap verði markmið í sjálfu sér — án þess að við horfum jafnframt á næringu, styrk, líðan og sambandið við mat.

Við sem störfum við heilsuráðgjöf þurfum líka að vera meðvituð um okkar eigin orð, áherslur og skilaboðin sem við sendum.

Heilsuefling á að auka skilning okkar á líkamanum — alls ekki óttann við að búa í honum.

Samfélagsmiðlar eru ekki einir í herberginu

Og þá kem ég aftur að börnunum okkar.

Samfélagsmiðlar hafa áhrif. En samfélagsmiðlar eru ekki einir í herberginu.

Börnin heyra hvernig við tölum um eigin líkama og líkama annarra.

Þau heyra þegar við hrósum einhverjum fyrir að hafa grennst án þess að vita hvað liggur þar að baki. Þau heyra þegar við veltum fyrir okkur hvers vegna einhver „grennist ekki“ eða „fari ekki bara á lyf“.

Og þau sjá þegar við fullorðna fólkið óttumst nokkur kíló á eigin líkama á sama tíma og við segjum þeim að elska sinn.

Þess vegna þurfum við kannski öll að horfa aðeins í eigin barm — foreldrar, heilbrigðisstarfsfólk og við sem störfum við heilsuráðgjöf.

Hvaða skilaboð sendum við börnunum okkar þegar enginn samfélagsmiðill er í herberginu?

Kannski er það ein mikilvægasta spurningin í þessari umræðu.

Markmiðið ætti ekki að vera að eltast við ákveðna tölu á vigtinni, heldur að læra að þekkja eigin líkama, skilja hvað nærir hann, hvað hann skortir og hvað hann þarf á hverju æviskeiði.

Raunveruleg heilsa felst ekki í því að berjast stöðugt við líkamann, heldur að læra að hlusta á hann, næra hann og vinna með honum. Og kannski er það einmitt sú fyrirmynd sem börnin okkar þurfa mest á að halda.

Aftur á bloggið

Hvað fannst þér um þessa grein?