Uppsetning
Settu FORA Connect 21 á upphandlegginn samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Fylgstu með blóðsykrinum allan sólarhringinn án endurtekinna fingurstungna.
FORA Connect 21 mælir glúkósa á 5 mínútna fresti og sendir niðurstöðurnar sjálfvirkt í Instara appið, þar sem þú færð skýra yfirsýn yfir þróun blóðsykursins.
CGM (Continuous Glucose Monitoring) er samfelld glúkósamæling þar sem skynjari fylgist með glúkósagildum allan sólarhringinn. Í stað þess að fá aðeins eina niðurstöðu á ákveðnu augnabliki færðu yfirsýn yfir hvernig gildin breytast yfir tíma og getur fylgst með þróuninni í Instara appinu.
Settu FORA Connect 21 á upphandlegginn samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda.
Tengdu FORA Connect 21 við Instara appið í símanum.
Mælingar berast reglulega og þú getur skoðað gildi, þróun og yfirlit í appinu.
Instara tekur sjálfkrafa á móti mælingum frá FORA Connect 21 og sýnir glúkósagildi og þróun þeirra á einum stað í símanum.
Skannaðu QR-kóðann til að sækja Instara fyrir iOS eða Android.
Skoðaðu breytingar í
kringum máltíðir.
Fylgstu með þróun í
tengslum við hreyfingu.
Skoðaðu þróun mælinga
yfir nóttina.
Skoðaðu gögn yfir
lengri tíma
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um FORA Connect 21.
FORA Connect 21 er samfelldur glúkósamælir (CGM). Skynjarinn sendir mælingar í Instara appið á fimm mínútna fresti, virkar í allt að 21 dag og er með 15 mínútna upphitunartíma eftir virkjun.
Skynjarinn er ætlaður til notkunar aftan á upphandlegg. Húðin þarf að vera hrein, hárlaus og alveg þurr áður en skynjarinn er settur á með ásetningarbúnaðinum. Að lokum er meðfylgjandi aukaplástur settur yfir skynjarann til að styrkja festinguna. Fylgdu ávallt notkunarleiðbeiningunum sem fylgja vörunni.
Við venjulega notkun þarf ekki að mæla reglulega með fingurstungu. Fingurstungumæling getur þó verið nauðsynleg ef einkenni passa ekki við mælingar skynjarans eða ef grunur er um ónákvæma mælingu. Skynjarinn mælir styrk glúkósa í millifrumuvökva undir húðinni, en ekki beint í blóði. Þess vegna getur orðið lítil tímaseinkun miðað við blóðmælingu, sérstaklega þegar glúkósagildi breytast hratt.
Já, skynjarinn er með IP58-vörn gegn vatni og ryki. Fylgdu leiðbeiningum framleiðanda um hámarksdýpt og tíma í vatni. Ekki nudda eða þurrka harkalega yfir skynjarann. Mikill sviti, núningur, högg eða þröngur fatnaður geta haft áhrif á festingu hans.
Skynjarinn er með eigin límflöt sem festist við húðina. Eftir uppsetningu er meðfylgjandi aukaplástur settur yfir skynjarann til að styrkja festinguna. Ef skynjarinn losnar alveg eða dettur af skaltu ekki reyna að setja hann aftur á. Hafðu samband við söluaðila með pöntunarnúmer, myndir og lýsingu á því sem gerðist. Ekki henda skynjaranum fyrr en málið hefur verið skoðað.
Skynjarinn tengist Instara appinu með Bluetooth. Appið er ætlað fyrir iOS og Android. Athugaðu fyrst hvort appið virkar með símanum þínum og App Store- eða Google Play-reikningnum þínum áður en þú kaupir skynjarann.
Bluetooth þarf að vera kveikt á símanum og síminn þarf að vera nálægt skynjaranum svo mælingarnar berist í appið. Hægt er að stilla viðvaranir við háum og lágum gildum í Instara appinu. Til að fá viðvaranir þarftu að leyfa tilkynningar frá appinu í stillingum símans.
Athugaðu að Bluetooth sé kveikt á símanum, að síminn sé nálægt skynjaranum og að Instara appið hafi leyfi til að nota Bluetooth. Prófaðu síðan að loka appinu og opna það aftur. Ef vandamálið lagast ekki skaltu hafa samband við söluaðila með pöntunarnúmer, lýsingu á vandamálinu og skjáskot af villuboðum. Ekki fjarlægja eða henda skynjaranum nema þú fáir fyrirmæli um það.
Lesið notkunarleiðbeiningar vandlega fyrir fyrstu notkun. Notið vöruna samkvæmt notkunarleiðbeiningum framleiðanda og leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki þegar við á. Skynjarinn kemur ekki í stað greiningar, meðferðar eða læknisfræðilegrar ráðgjafar. Ekki breyta lyfjum eða insúlíngjöf án samráðs við heilbrigðisstarfsfólk.
Samfelld blóðsykursmæling · 14.990 kr.